- 6 stk.
- 22.01.2018
Sigurborg Jóhannsdóttir er fædd á Vopnafirði. Hún útskrifaðist af myndlistabraut Menntaskólans á Akureyri 1986. Þaðan fór hún í grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist 1989. Sigurborg lauk kennaraprófi frá KHÍ 1991. Hún kenndi myndlist um skeið en starfar nú hjá Hafrannsóknastofnuninni. Sigurborg hefur undanfarið unnið nokkuð í tréplötur, þar sem hún blandar saman útskurði, fræsingu, vaxi og olíumálun, ásamt því að samtvinna við það þæfða ull og barnavettlinga sem áttu upphaf sitt í samsýningunni “Bókverk-bóklist” hjá Handverki og hönnun 2004.
Þá fóru barnavettlingarnir að sjást í bók gerðri úr ull “Ljáðu mér hönd að halda í”. Þeir voru svo ríkjandi þema í sýningunni "Angist”. Sýning Sigurborgar er óður til þess hversdagslega, til hannyrða alþýðukvenna í gegnum tímann þar sem þær nostruðu við sauma og prjón á sig og sína. Sýningin stóð frá 28. sept. til 16. okt. 2012.