Ýrúrarí í Hönnunarsafni Íslands

Mynd af Facebook síðu Ýrúrarí
Mynd af Facebook síðu Ýrúrarí

Peysa með öllu fyrir alla

Ýr Jóhannsdóttir textílhönnuður sem hannar undir merkinu Ýrúrarí hefur komið sér fyrir á Hönnunarsafni Íslands en þar verður hún með vinnustofudvöl fram í maí. 

Ýr Jóhannsdóttir

Ýr Jóhannsdóttir er textílhönnuður og listakona sem starfar undir nafninu Ýrúrarí. Verk hennar eru að mestu unnin í prjóni og í þeim mætast húmor, handverk og hreyfing.
Ýr stundaði nám í textíl hönnun við Myndlistarskólann í Reykjavík og lauk BA gráðu í faginu í Glasgow school of Art árið 2017 og stundar nú nám í listkennsludeild LHÍ.
Á vinnustofu Ýrúrarí á Hönnunarsafni Íslands mun fara fram vinna að framhaldi verkefnisins Peysa með öllu sem hún vann í samstarfi við fatasöfnun Rauða Krossins fyrir HönnunarMars 2020. Í því verkefni vann Ýrúrarí með peysur sem lent höfðu í óhöppum í fyrra lífi og voru því ekki boðlegar til sölu í verslunum Rauða Krossins.
Enn safnast upp töluvert magn af ósöluhæfum peysum til fatasöfnunarinnar og þörf er á fleiri hugum og höndum í verkið. Framhald verkefnisins er því Peysa með öllu fyrir alla. Hér verða prufaðar áfram aðgengilegar og skapandi fataviðgerðir með miðlunarðleiðum sem gera fataviðgerðirnar persónulegar og skemmtilegar.
Markmið verkefnisins er að stuðla að lengri samverutíma okkar með þeim fötum sem við eigum nú þegar og koma í veg fyrir að þeim sé hent um leið og örlítið er farið að sjá á þeim. Gestum og gangandi er boðið að kynna sér ferlið og jafnvel prufa sjálf fataviðgerðir sem vekja áhuga þeirra.
Fólki verður boðið að taka að sér peysu, koma á námskeið í fataviðgerðum og fleira skemmtilegt sem auglýst verður síðar.
Verkefnið er hluti af lokaverkefni Ýrar í listkennsludeild Listaháskóla Íslands.
Hægt er að  fylgjast með því sem er að gerast hjá Ýrúrarí:

Lesa má nánar um vinnustofudvölina á Facebook og á vef Hönnunarsafns Íslands.