Vorsýning Hönnunar- og nýsköpunarbrautar 2017

Vorsýning nemenda Hönnunar- og nýsköpunarbrautar

Nemendur á hönnunar- og nýsköpunarbraut Tækniskólans sýna afrakstur vetrarvinnunnar, í matsal nemenda í aðalbyggingu skólans á Skólavörðuholti. Sýningin er opin almenningi frá 10. – 15. maí, á virkum dögum frá kl. 13:00 -16:00, laugardaginn 13. maí frá 10:00-14:00, en lokað sunnudaginn 14. maí.

Um er að ræða fjölbreytta sýningu úr sem flestum áföngum brautarinnar og má sjá allt frá skissuvinnu, formfræðiverkefnum, litastútíum yfir í frekari útfærslu á hugmyndum í formi teikninga, líkana eða frekari útfærslu á hugmynd í raunverulegri mynd. Í vinnu nemenda er leitast við að hafa nýsköpun, sjálfbærni og virðingu fyrir umhverfinu að leiðarljósi.
Flestir nemendur sem útskrifast af brautinni stefna á frekara nám í hönnun eða arkitektúr hér heima eða erlendis.

Nemendur á hönnunar- og nýsköpunarbraut Tækniskólans sýna afrakstur vinnu sinnar veturinn 2016-2017 á sýningu í matsal nemenda í aðalbyggingu skólans á Skólavörðuholti.

Sýningin stendur yfir 10. – 15. maí og er opin á virkum dögum kl. 13:00 -16:00 og laugardaginn 13. maí kl. 10:00 -14:00. Lokað er sunnudaginn 14. maí.

Á sýningunni má sjá fjölbreytt verk nemenda sem gefa yfirlit yfir vinnu ólíkra áfanga brautarinnar.

Markmið námsins er að búa nemendur undir hönnunar- og tæknitengdar greinar á háskólastigi. 

Náminu á brautinni lýkur með stúdentsprófi. Einnig er boðið upp á eins árs fornám fyrir nemendur með stúdentspróf. 
Námið brúar bil á milli verklegrar og tæknilegrar þekkingar og aðferða í hönnun þar sem unnið er með hönnunarferli í lausnaleit.

Sérstök áhersla er á vinnu með verklag, nýsköpun og sjálfbærni. Að námi loknu eiga nemendur að vera með góðan undirbúning  fyrir nám sem reynir á skapandi vinnu, lausnaleit og frumkvæði í einstaklingsvinnu sem og samvinnu. 

Viðburður á facebook