Vistvænn jólamarkaður í Norræna húsinu

JÓLAMARKAÐUR NORRÆNA HÚSSINS 
2. desember kl. 14-17. 

HÁKLASSA VISTVÆN HÖNNUN Í JÓLPAKKANN

Hönnuðir og listamenn koma saman í Norræna húsinu og sýna hvernig hægt er að skapa vandaðar og eftirsóttar vöru á vistvænan hátt. 

Hönnuðir
Ingasol design - Nordic Angan - Usee - Sisters redesign – Blámáni – Basalt – Klassísk dönsk hönnun – Fánapokar - Í boði náttúrunnar - Guðrún Borghildur Ingvarsdóttir - E R L A - La Diva Rosa - VERANDI - Gentle North - Kolbrún -  Halldóra Bjarnadóttir - Sigurður Petersen - Gunnlaug Hannesdóttir - Áslaug Saja - Eva og Anna Sóley - As we grow ofl.

Vertu velkomin í huggulega og sjálfbæra stemningu í Norræna húsinu. Jólaglögg, tónlist, fróðleikur og innblástur. 

Barnabókasafn Norræna hússins býður upp á jólaföndur fyrir börn og glæsilegt leiksvæði. 
Fræðslufulltrúi frá Sorpu verður á svæðinu og veitir gestum og gangandi góð ráð um endurvinnslu. 
Skjóða, leiðindaskjóða kemur í heimsókn. En hún er tengiliður á milli Hulduheima og mannheima. 
Stúlknakór frá Barnaskólanum í Reykjavík syngur fyrir börnin á barnabókasafninu. 

Gefðu umhverfisvæna jólagjöf sem eykur ímyndunarafl þess sem þiggur.
Munið að taka með ykkur reiðufé :) 

www.noreaenahusid.is