Vantar þig vinnuaðstöðu?

Viltu sinna hugðarefnum þínum í fallegu umhverfi á Blönduósi?

Frá byrjun febrúar til aprílloka býður Textílmiðstöðin upp á sérstakt vetrarverð fyrir lista-og handverksfólk sem og hönnuði sem vinna að textíltengdum verkefnum og fræðafólki sem vinnur að rannsóknum sem tengjast textíl.

Mánaðarverð er 100.000.- og lágmarksdvöl er 1 mánuður.

Innifalið er herbergi á heimavist skólans eða kennarabústöðum og aðgengi að vinnustofum. Vinnustofurnar eru; vefnaðarloft með ýmsum gerðum af hefðbundnum vefstólum og myndvefnaðarstólum, stórt stúdío með stórkostlegu útsýni yfir ósa Blöndu og Húnaflóann og litunarstúdíó þar sem hægt er að vinna með litun og þæfingu.

Hægt er að sækja um á heimasíðu Textílmiðstöðvar Íslands: www.textilmidstod.is

Ef spurningar vakna er hægt að senda tölvupóst á residency@textilecenter.is