Vantar þig pláss fyrir sýningu?

Vantar þig pláss fyrir sýningu? “Veggurinn” í Skúmaskoti, besti sýningarveggur bæjarins er nú til leigu fyrir listamenn og hönnuði  ásamt glugga sem snýr út að Klapparstíg. Hægt er að leigja vegginn fyrir hvers kyns lista- og hönnunarsýningar.

Tímalágmark er ein vika. Veggurinn er 2,50 á breidd 2,90 á hæð og  glugginn er 90x260.

Veggurinn er staðsettur í lista- og hönnunargalleríinu Skúmaskoti sem er á besta stað á Skólavörðustígnum.

Áhugasamir geta óskað eftir frekari upplýsingum á: skumaskot23@gmail.com