Útskriftarsýningu meistaranema LHÍ framlengt

Gerðarsafn | Útskriftarsýningu meistaranema framlengt

Útskriftarsýningu meistaranema í hönnun og myndlist frá Listaháskóla Íslands verður framlengt um viku vegna góðra viðtaka og verður síðasti sýningardagur föstudagurinn 18. maí. Á sýningunni má sjá afrakstur tveggja ára háskólanáms á meistarastigi þar sem hönnuðir og myndlistarmenn hafa fengið tækifæri til að þróa og styrkja rannsóknir sínar á viðkomandi fagsviðum. Áhersla er lögð á skapandi og greinandi hugsun sem nýtist við framsækin verkefni á sviðum hönnunar og myndlistar á Íslandi.
Útskriftarnemendur í myndlist eru Andreas Brunner, Arnar Ómarsson, Clara Bro Uerkvitz, Einar Örn Benediktsson, Juliane Foronda, Juliette Frenay & Maria-Magdalena Ianchis. Útskriftarnemendur í hönnun eru Andrés Julián León Cruz, Arjun Singh, Árdís Sigmundsdóttir, Guðrún Margrét Jóhannsdóttir & Michelle Site.

Sýningarstjóri er Brynja Sveinsdóttir.
Sjá nánar á vef Gerðarsafns