Umsóknarfrestur rennur út á miðvikudaginn!

H A N D V E R K
O G  H Ö N N U N

í Ráðhúsi Reykjavíkur
23. - 27. nóvember 2017

UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT Á MIÐVIKUDAGINN

Allir sem vinna við handverk, listiðnað og hönnun geta sótt um þátttöku. Sýningin stendur í 5 daga og er aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar fyrir umsækjendur
UMSÓKNAREYÐUBLAÐ

Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2017.

Upplýsingar: 

  • Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og hönnun er heimilt að sækja um þátttöku á sýningunni.
  • Sérstök fagleg valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur þátttakendur og er ný valnefnd er skipuð fyrir hverja sýningu.
  • Mikilvægt er að sýningin endurspegli fjölbreytt úrval og mun valnefnd hafa það í huga þegar þátttakendur eru valdir.
  • Mikilvægt er að þeir sem hafa áður tekið þátt í sýningunni taki fram í umsókn ef þeir ætla að kynna nýjar vörur.
  • Mikilvægt er að allir sem áhuga hafa á þátttöku geri ráð fyrir að vera sem mest á staðnum sjálfir. Eitt af markmiðum þessarar sýningar er að gestir hitti fólkið á bak við hlutina.

Gert er ráð fyrir að niðurstaða valnefndar muni liggja fyrir 19. september 2017.

Nánari upplýsingar á skrifstofu HANDVERKS OG HÖNNUNAR sem er opin alla virka daga frá kl. 9-16, s. 551 7595 og 899 7495.