Tilraun – leir og fleira

Sýningin Tilraun – leir og fleira er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar. Þátttakendur sýningarinnar koma úr ólíkum starfstéttum sjónlista. Þeir nota allir leir í verkum sínum en voru gefin mismunandi orð til að vinna þau útfrá. Útkoman eru annarsvegar fullgerð verk á meðan önnur sýna rannsókn eða vinnuaðferð.

Sýnendur eru: Aldís Bára Einarsdóttir, Anna Hallin, Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Brynjar Sigurðarson, Búi Bjarmar Aðalsteinsson, Erna Elínbjörg Skúladóttir, Hanna Dís Whitehead, Hildigunnur Birgisdóttir, Daniel Durnin, Garðar Eyjólfsson, Gunnhildur Helgadóttir, Olga Bergmann, Páll Einarsson, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Sigga Heimis, Sigrún Jóna Norðdahl, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Hauksson, Sigurlína Margrét Osuala, Theodóra Alfreðsdóttir og Veronika Sedlmair.
Sýningarstjórn er í höndum hönnunartvíeykisins TOS sem skipað er þeim Hildi Steinþórsdóttur arkitekt og Rúnu Thors vöruhönnuði en hugmynd þeirra að sýningunni var valin úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu í safninu 2016.

Tilraun – leir og fleira er sjötta sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr innsendum tillögum. Áður hafa verið settar upp, sem hluti af sama verkefni, sýningar Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur mannfræðings, Í bili, haustið 2011, sýning Guðna Tómassonar listsagnfræðings, SKIA, haustið 2012, sýning Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts, Vísar-húsin í húsinu, haustið 2013, Rás, sýning Helgu Þórsdóttur, haustið 2014 og sýning Aðalheiðar Valgeirsdóttur og Aldísar Arnardóttur listfræðinga, Heimurinn án okkar haustið 2015. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir og vera vettvangur þar sem myndlist fær notið sín mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum.

Sýningin stendur til 23. október