Tillaga NNCA að nýjum handverksverðlaunum Norðurlandaráðs

Tillaga NNCA að nýjum handverksverðlaunum Norðurlandaráðs

The Nordic Network of Crafts Associations (NNCA), sem sameinar sjö handverkssamtök á Norðurlöndum, þar á meðal HANDVERK OG HÖNNUN, leggur til að stofnuð verði sérstök handverksverðlaun Norðurlandaráðs. Markmiðið er að auka sýnileika norræns samtímahandverks, fagna menningarlegum og listrænum fjölbreytileika og varpa ljósi á framlag listamanna og handverksfólks til samfélagsins.

Norðurlandaráð veitir nú þegar fimm árleg verðlaun: bókmenntaverðlaun, barna‑ og ungmennabókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun, kvikmyndaverðlaun og umhverfisverðlaun. Hvert þeirra felur í sér peningaverðlaun sem nema 300 þúsund dönskum krónum og styttu, og eru þau afhent á árlegum fundi Norðurlandaráðs. Elstu verðlaunin, bókmenntaverðlaunin, voru stofnuð árið 1962, en þau yngstu, barna‑ og ungmennabókmenntaverðlaunin, árið 2013.

Tillagan um handverksverðlaun hefur fengið vaxandi hljómgrunn. Hún hefur verið rædd á fundum Norðurlandaráðs og hlotið stuðning og leggur ráðið jafnframt til víðtækari myndlistarverðlaun sem spanni bæði listir og handverk. NNCA leggur áherslu á jafna stöðu samtímahandverks, þar á meðal handverkshefðir jaðarhópa og frumbyggja, í mats­ferli verðlaunanna. Endanleg ákvörðun um tillöguna er væntanleg í júní 2025.

Lesið tillöguna frá NNCA á netinu:nordiccrafts.net
Lesið tillögu Nordic Council’s Social Democrat Group um ný myndlistar‑ og handverksverðlaun:https://www.norden.org/en/node/93414

NNCA samanstendur af:

Danske Kunsthåndværkere & Designere
HANDVERK og HÔNNUN
Konsthantverkscentrum
Konstnärernas Riksorganisation
Norske Kunsthåndverkere
Norwegian Crafts
ORNAMO