Þolmörk

Fyrsta sýningin í nýju húsnæði HANDVERKS OG HÖNNUNAR á Eiðistorgi var opnuð á síðasta vetrardag, þann 18. apríl sl. Þar sýnir Embla Sigurgeirsdóttir keramikhönnuður ný verk en sýninguna kallar hún ÞOLMÖRK.  

Embla útskrifaðist með BA Hons í  keramikhönnun frá University of  Cumbria í Englandi árið 2014 en þar áður stundaði hún tveggja ára nám við Mótun í Myndlistarskólanum í Reykjavík.

Hún er með vinnustofu í Íshúsi Hafnarfjarðar og er meðlimur í listamannafélagi Kaolíns en hún rekur það gallerí ásamt 7 öðrum keramikerum á Skólavörðustíg 5 í Reykjavík.

Á sýningu hennar Þolmörk sýnir hún hvernig hún hefur leyft sér að taka mistök sín skrefinu lengra og skoðar þolmörk efnis og burðar.

Hún brýtur verk sín niður að grunni til þess að reisa þau upp aftur með nýja sýn og þekkingu á eigin ferðalagi sem ávannst með því að taka efni og aðferðir alla leið að endamörkum.

Sýningin er fyrst og fremst hugsuð sem gluggasýning en fólk er að sjálfsögðu velkomið inn á opnunartíma skrifstofunnar.

Sýningin Þolmörk mun standa til 28. maí.

Viðburðurinn á Facebook

Facebook síða Emblu