Þjáning/Tjáning

"Þjáning/Tjáning" er yfirskrift sýningar Brynhildar Kristinsdóttur í Mjólkurbúðinni Akureyri, þar sýnir hún skúlptúra og myndverk.

Verkin fjalla um tjáningu mannsins, angist, ótta og hvernig hugmyndir hlutgerast. Á sýningunni er einnig pistill eftir Héðinn Unnsteinsson um flakk milli heima. Sýningin var opnuð 17. sept.

Brynhildur Kristinsdóttir (f.1965) nam myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Eftir útskrift úr myndmótunardeild 1989 fór Brynhildur til Ítalíu þar sem hún vann með myndhöggvurum en síðan lá leið hennar í Iðnskólann í Reykjavik þar sem hún lærði húsgagnasmíði en árið 2011 lauk hún kennaranámi frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess að starfa við eigin myndsköpun hefur hún kennt myndlist og átt í samstarfi við ýmsa listamenn, gert leikmynd og búninga fyrir gjörninga og dans. Brynhildur hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Hún starfar nú á Akureyri sem athafnasamur kennari og myndlistarmaður.Brynhildur Kristinsdóttir (f.1965) nam myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Eftir útskrift úr myndmótunardeild 1989 fór Brynhildur til Ítalíu þar sem hún vann með myndhöggvurum en síðan lá leið hennar í Iðnskólann í Reykjavik þar sem hún lærði húsgagnasmíði en árið 2011 lauk hún kennaranámi frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess að starfa við eigin myndsköpun hefur hún kennt myndlist og átt í samstarfi við ýmsa listamenn, gert leikmynd og búninga fyrir gjörninga og dans. Brynhildur hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Hún starfar nú á Akureyri sem athafnasamur kennari og myndlistarmaður.Brynhildur Kristinsdóttir (f.1965) nam myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Eftir útskrift úr myndmótunardeild 1989 fór Brynhildur til Ítalíu þar sem hún vann með myndhöggvurum en síðan lá leið hennar í Iðnskólann í Reykjavik þar sem hún lærði húsgagnasmíði en árið 2011 lauk hún kennaranámi frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess að starfa við eigin myndsköpun hefur hún kennt myndlist og átt í samstarfi við ýmsa listamenn, gert leikmynd og búninga fyrir gjörninga og dans. Brynhildur hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Hún starfar nú á Akureyri sem athafnasamur kennari og myndlistarmaður.