Sýningarsalurinn Grásteinn Skólavörðustíg 4

Sýningarsalurinn er á efri hæð Skólavörðustígs 4.
Sýningarsalurinn er á efri hæð Skólavörðustígs 4.

Gallery Grásteinn leigir út sýningarsalinn GRÁSTEIN á efri hæð sinni á Skólavörðustíg 4 og leigist sýningarsalurinn út í einn mánuð í senn.

Sýningarsalur Gallery Grásteins er kjörinn fyrir listafólk sem vill sýna og kynna verk sín í rúmgóðum og björtum sýningarsal á besta stað í Reykjavík. Salurinn er opinn á sama tíma og Gallery Grásteinn, þ.e alla virka daga frá kl. 13-18 og 13-17 um helgar.
Sýningarsalurinn leigist út í mánuð í senn.
Gallery Grásteinn er metnaðarfullt listmuna- og handverksgallerí sem sérhæfir sig í sölu listmuna meðlima þess.
Gallery Grásteinn svarar öllum spurningum er viðkemur sýningarsalnum og tekur á móti umsóknum á netfangið grasteinnsalur@gmail.com
Tengiliðir salarins eru Pálmi Bjarnason (s. 893 0706) og Árný Björk Birgisdóttir (s. 897 9007).

Gallery Grásteinn
Skólavörðustígur 4
101 Reykjavík

Gallery Grásteinn á Facebook