Sumarnámskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík

Í júní býður Myndlistaskólinn í Reykjavík upp á nokkur stutt námskeið af fjölbreyttum toga. Viðfangsefnin eru ólík og misjafnt er hvort þau séu ætluð fyrir byrjendur eða lengra komna.
Tilvalinn kostur fyrir þá sem vilja gera sér dagamun og læra eitthvað nýtt.

Nánari upplýsingar og skráningu má finna á vef skólans.
Áhugasömum er bent á að skrá sig tímanlega þar sem námskeiðin geta verið fljót að fyllast.

Meðal námskeiða sem boðið er upp á:

Frjáls módelteikning
Stutt og hnitmiðað námskeið í frjálsri módelteikningu þar sem teiknað verður með óhefðbundnum aðferðum. Markmiðið er að nemandinn nái að losa um ótta við að teikna „rétt“ og finni frelsi í því að teikna eftir lifandi fyrirmynd.
Æskilegt er að nemendur hafi einhverja reynslu í módelteikningu og anatómíu. Hefst 11. júní.

Leirrennsla
Á námskeiðinu er kennt á rafknúinn rennibekk og hver nemandi fær einn slíkan til afnota. Nemendur fá að kynnast heildstæðu ferli þar sem farið er í forvinnu, afrennslu og lokafrágang ásamt glerjun. Að námskeiði loknu taka þáttakendur leirmuni heim.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum sem og lengra komnum. Hefst 20. júní.

Grafík og gróður (kvöldnámskeið)
Stutt og hnitmiðað námskeið þar sem nemendur kynnast tveimur aðferðum í grafíktækni, dúkristu og einþrykki. Nemendur læra að nota grafíkpressu og önnur tæki og tól. Gróður verður rauður þráður í gegnum námskeiðið og unnið verður bæði innan- og utandyra.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum sem og lengra komnum. Hefst 20. júní.

Grafík og gróður (morgunnámskeið)