Stáss design hlaut Skúlaverðlaunin 2011

Torfbærinn
Torfbærinn

Verðlaun fyrir besta nýja hlutinn

Efnt var til verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn meðal þátttakenda í sýningunni. Tæplega fimmtíu tillögur bárust frá 30 aðilum. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni í Ráðhúsinu gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn. Hlutirnir máttu hvorki hafa verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. Fagleg valnefnd sem Anna Leoniak arkitekt og vöruhönnuður og Ólöf Erla Bjarnadóttir leirlistamaður skipuðu valdi sigurvegara. Niðurstaðan var að veita tvær viðurkenningar auk Skúlaverðlaunanna. Verðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og framkvæmdastjóri samtakanna Orri Hauksson afhenti þau.
Hönnunarteymið Stáss design skipað þeim Árnýju Þórarinsdóttur og Helgu Guðrúnu Vilmundardóttur hlaut Skúlaverðlaunin 2011 fyrir „Torfbærinn” á sýningunni. 
Einnig voru tvær viðurkenningar veittar, Sigrún Ólöf Einarsdóttir glerlistakona í Bergvík fékk viðurkenningu fyrir glermortél og teymið Postulína (Guðbjörg Káradóttir og Ólöf Jakobína Ernudóttir) fyrir Gull, reykelsi og myrru, sem eru hálfkúlur notaðar til skrauts.

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins