SPILADÓSIR - námskeið

Námskeið hjá Heimilisiðnaðarskólanum

Ofin er spiladós úr hvítu pappírssnæri með mismunandi skrauti. Spilverkið er lag Jórunnar Viðar „Það á að gefa börnum brauð“. Námskeiðið hentar bæði byrjendum í körfuvefnaði og þeim sem áður hafa kynnst því handverki. Nemendur geta keypt efni og spilverk eftir námskeiðið til að taka með heim

Kennari: Margrét Guðnadóttir
Lengd námskeiðs: 1 skipti = 3 klst.
Tími: 25. nóvember - mánudag kl. 18 - 21.
Námskeiðsgjald: 11.800 kr. (10.620 kr. fyrir félagsmenn) - efni er innifalið.