Skúlaverðlaunin 2019

Guðný Hafsteinsdóttir
Guðný Hafsteinsdóttir

Skúlaverðlaunin 2019 voru afhent í lok fyrsta opnunardags sýningarinnar Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur sem stóð yfir dagana 21. til 25. nóv. 2019. Verðlaunin hlaut Guðný Hafsteinsdóttir keramiker og hönnuður sem hannar undir merkinu Gudnyhaf. Verðlaunin hlaut hún fyrir jólakúlur sem kallast "YOLO" og eru nýstárlegar jólakúlur úr steyptu postulíni.

Um hugmyndina að "YOLO" segir Guðný: „YOLO er stytting á You Only Live Once, sem er enskt orðatiltæki sem ungt fólk notar bæði á Íslandi og erlendis. En jörðin okkar lifir líka aðeins einu sinni og þess vegna langaði mig að nefna kúlurnar þessu nafni. YOLO kúlurnar vísa þó ekki aðeins í jörðina heldur líka himintunglin, miðbaug og hringi Satúrnusar."

Að auki var veitt ein viðurkenning en hana hlaut Philippe Ricart fyrir handofin sjöl/teppi sem hann nefnir "Heiðalönd" og er með litum og munstri frá heiðlóunni.

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri  SI sem afhenti verðlaunin.

Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur var haldin dagana 21.-25. nóvember og voru þátttakendur 55 talsins. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn.  Skilyrðin voru að hlutirnir  máttu hvorki  hafa  verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Dómnefnd skipuðu María Kristín Magnúsdóttir skóhönnuður og Ýr Jóhannsdóttir textílhönnuður. 

Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins Samtök iðnaðarins