Sigrún Ólöf Einarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2016

Verðlaunin hlaut Sigrún Ólöf Einarsdóttir fyrir lampaseríuna „Ljóma“.
Verðlaunin hlaut Sigrún Ólöf Einarsdóttir fyrir lampaseríuna „Ljóma“.

Sigrún Ólöf Einarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2016 á sýningunni Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Skúlaverðlaunin 2016 voru afhent á fyrsta opnunardegi sýningarinnar Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Verðlaunin hlaut Sigrún Ólöf Einarsdóttir fyrir lampaseríuna „Ljóma“.

Sigrún er ein af fremstu glerlistamönnum Íslands og hefur rekið glerblásturvinnustofuna Gler í Bergvík á Kjalarnesi í 36 ár.

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri sem afhenti verðlaunin.

Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur var haldin dagana 3.-7. nóvember og voru þátttakendur 58 talsins. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni nú í nóvember gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn.  Skilyrðin voru að hlutirnir  máttu hvorki  hafa  verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Tæplega tuttugu  tillögur bárust og faglega valnefnd skipuðu Hanna Dís Whitehead vöruhönnuður og Þóra Björk Schram textíllistamaður.

Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins Samtök iðnaðarins