Skapandi fataviðgerðarsmiðja - Ýrúrarí

SKAPANDI FATAVIÐGERÐARSMIÐJA 

Textílhönnuðurinn og listakonan Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrarí býður upp á opna smiðjur í skapandi fataviðgerðum í Hönnunarsafni Íslands.

Smiðjan býður upp á verkfæri, efnivið og aðstöðu fyrir útsaum, prjón, þurr þæfingu, vélsaum og ýmiskonar fræðsluefni um fataviðgerðir. Þátttakendur eru hvattir til að mæta með flíkur sem þarf að lappa upp á eða breyta. Einnig er í boði að taka að sér peysu sem þarfnast viðgerða frá fatasöfnun Rauða Krossins á Íslandi.

Smiðjan býður upp á verkfæri, efnivið og aðstöðu fyrir útsaum, prjón, þurr þæfingu, vélsaum og ýmiskonar fræðsluefni um fataviðgerðir. Þátttakendur eru hvattir til að mæta með flíkur sem þarf að lappa upp á eða breyta. Einnig er í boði að taka að sér peysu sem þarfnast viðgerða frá fatasöfnun Rauða Krossins á Íslandi. Ef þátttakendur eru með sína eigin hugmynd að fataviðgerð er um að gera að koma með eigið garn eða efnivið fyrir viðgerðina.

Þátttakendur þurfa ekki að hafa neina reynslu af fataviðgerðum til að taka þátt. Gert er ráð fyrir því að ef börn vilja taka þátt komi þau í fylgd fullorðins. Ef spurningar vakna um þátttöku skal senda tölvupóst á yr@yrurari.com eða senda inn fyrirspurn á facebook hópinn "Peysa með öllu".
Verkefnið er hluti af lokaverkefni Ýrar úr Listkennsludeild Listaháskóla Íslands.

Vegna mikils áhuga á smiðjunni er nauðsynlegt að skrá sig með því að senda tölvupóst á yrj1992@gmail.com

Nánari upplýsingar hér