Samtvinnað

Sýningin SAMTVINNAÐ hefur verið opnuð í Anarkíu, Kópavogi. Þar sýna tuttugu og þrjár konur úr Textílfélaginu verk sín.

Textílfélagið opnar sýningu í Anarkíu listasal í Kópavogi laugardaginn 29. okt kl 15-18. Tuttugu og þrjár félagskonur taka þátt í sýningunni sem er mjög fjölbreytt. Þar gefur að líta bæði myndverk og hönnun. Verkin eiga það sameiginlegt að tengjast þræðinum á einhvern hátt. Textílfélagið var stofnað  árið 1974 og er eitt af aðildarfélögum SÍM, Sambands íslenskra myndlistarmanna og eitt þeirra félaga sem stendur að Hönnuarmiðstöð.

Eitt af aðalmarkmiðum félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og kynna list þeirra og hönnun á innlendum og erlendum vettvangi. Félagið rekur verkstæði að Korpúlfsstöðum í Reykjavík, þar sem félagsmenn hafa vinnuaðstöðu, haldin eru námskeið og kynningar á vegum félagsins.

Anarkía er til húsa við Hamraborg 3 (Auðbrekkumegin) í Kópavogi.

Sýningin er opin miðvikudaga til sunnudaga kl 15-18 til 20.nóvember.