SAMTAL - Íris Ólöf í Hjarta Reykjavíkur

SAMTAL

Íris Ólöf Sigurjónsdóttir sýnir í Hjarta Reykjavíkur, Laugavegi 12b

Textílar og steinar eru miðill Írisar – hart og mjúkt. Þetta tvennt talar saman, aðlagast og bætir hvort annað upp. Brotna steina setur hún saman aftur og fylli þá af mjúkum textíl. Bindur svo allt saman með lituðum tvinna sem dregur fram liti steinsins og til verður ný mynd.
Íris er menntaður vefari frá Osló og textílforvörður frá London, þriggja barna móðir, stjúpmóðir og amma.
Hún hefur alla tíð unnið að sköpun í einhverri mynd. Sextug ákvað hún að segja upp starfi sínu sem safnstjóri og hella sér út í listina og þræðina sem alltaf kalla á hana.
Íris hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum.
 
Sýningin SAMTAL stendur frá 16. október til. 14. nóvember 2021.