Óskað er eftir umsóknum - The European Prize for Applied Arts

Samkeppni sem opin er öllum þeim sem starfa á sviði nytjalistar og listhandverks og eru búsettir í Evrópu.

The European Prize for Applied Arts miðar að því að verðlauna bestu sköpun í nútíma nytjalist og handverki. Sýnendur og verðlaunahafar eru valdir af dómnefnd alþjóðlegra sérfræðinga á grundvelli listrænna verðleika, tæknilegrar hæfni og nýsköpunar.

Frestur til að sækja um er til 14. janúar 2024

Allar nánari upplýsingar um umsóknarferlið má finna hér