Opið hús hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík

Fimmtudaginn 21. og föstudaginn 22. febrúar verður opið hús hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík, Hringbraut 121, frá kl. 10-17 og er það partur af kynningardögum Samtaka sjálfstæðra listaskóla.
Allir áhugasamir um nám í skólanum eru hvattir til þess að koma við og kynna sér námsleiðir skólans. Deildarstjórar, kennarar og nemendur verða við störf svo hægt er að fá alls kyns upplýsingar sem við kemur náminu, kynna sér verk í vinnslu og fá leiðsögn um húsnæði skólans.

Boðið er uppá eftirfarandi nám við skólann:
Listnámsbraut
• Tveggja ára nám til stúdentsprófs
• Eins árs fornám
Áfanganám á BA-stigi
• Keramik
• Málaralist
• Teikning
• Textíll
Námskeið
• Almenn námskeið fyrir 16 ára og eldri, Metin í framhaldsskólaeiningum.
• Barna- og unglinganámskeið

Þann 21. febrúar verður einnig opnað fyrir umsóknir í dagskóla en umsóknarfrestur um nám á listnámsbraut er til miðnættis 21. maí og í áfanganám á BA-stigi til miðnættis 31. maí.

Hér er hægt að finna allari nánari upplýsingar