Opið fyrir umsóknir um ferðastyrki hjá Hönnunarsjóði

Hönnunarsjóður auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki, þetta er þriðja úthlutun af fjórum í ár. Frestur til þess að sækja um rennur út á miðnætti þann 23. ágúst.

Ferðastyrkirnir eru ætlaðir hönnuðum og arkitektum til að auka möguleika á að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum og viðskiptastefnumótum. 

Hver ferðastyrkur nemur 100.000 krónum en sé gert ráð fyrir fleiri farþegum getur hvert verkefni hlotið fleiri en einn styrk. Gera má ráð fyrir að um 15 styrkjum verði úthlutað að þessu sinni.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Hönnunarsjóðs.