Frá vinstri: Sigursteinn Sigurðsson, Ninja Ómarsdóttir, Halla Lilja Ármannsdóttir,
Sigurlína Margrét Osuala og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
22. júní, 2023
Stjórnarfundur sjálfseignarstofnunarinnar HANDVERK OG HÖNNUN var haldinn þann 31. maí síðastliðinn.
Á honum tók ný stjórn HANDVERKS OG HÖNNUNAR formlega til starfa, en hana skipa:
Sigursteinn Sigurðsson formaður, arkitekt og verkefnastjóri hjá SSV.
Ninja Ómarsdóttir, varaformaður, alþjóðamarkaðsfræðingur.
Sigurlína Margrét Osuala, M.A í keramik og kennari.
Halla Lilja Ármannsdóttir, B.A prjónahönnuður.
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, alþingismaður.
Til vara eru:
Signý Ormarsdóttir.
Þórey S. Jónsdóttir.