Nærvera

Nærvera er sýning á nýjum peysum textílhönnuðarins Ýrúrarí á Hönnunarsafni Íslands, í sýningarstjórn hönnunarteymisins Stúdíó Fræ.

Ferlið við gerð sýninguna byggist á tilraunum með fjölbreyttar textíl-nálganir sem veita ósöluhæfum peysum úr endurvinnslustöðvum sterkari nærveru svo þær haldist í notkun um ókomna tíð. Í anda fyrri verkefna Ýrúrarí eru peysurnar unnar á húmorískan hátt með leikgleði að leiðarljósi.

Markmiðið er að lífga upp á hversdaginn.

Yfir sýningartímabilið, sem stendur til 20. ágúst 2023, mun Ýrúrarí vinna grunn að bókverk með yfirliti yfir eldri verk sín og innsýn inn í efnivið og aðferðir sem hún notar. Grunnur bókverksins byggist á peysu sem mun mótast smám saman yfir tímabilið og verður ferlið skrásett jafnóðum á myndrænan hátt jafnóðum á safninu. Meðfram sýningunni fara fram smiðjur og aðrir viðburðir sem skoða má betur á heimasíðu Hönnunarsafns Íslands.

Ýr Jóhannsdóttir hefur starfað undir nafninu Ýrúrarí frá 2012 og skapað sér nafn á Íslandi sem og erlendis. Verkefni Ýrúrarí byggjast að mestu á textílgrunni þar sem hún leikur sér með mörk búninga og hversdags klæðnaðar. Undanfarin ár hefur sjálfbærni og endurvinnsla litað verkefni hönnuðarins sem vinnur að mestu með textíl sem safnast upp á endurvinnslustöðvum. Árið 2020 var verkefni Ýrúrarí „Peysa með öllu“, sem unnið var í samstarfi við fatasöfnun RKÍ, tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands. Verkefnið var þróað áfram á opinni vinnustofu Hönnunarsafns Íslands árið 2021 í formi skapandi fataviðgerðarsmiðju. Smiðjan hefur nú ferðast víðsvegar um Evrópu.

Verk eftir Ýrúrarí má m.a finna í ýmsum spennandi fataskápum en einnig í safneignum Textiel Museum í Hollandi, Museum für Kunst und Gewerbe í Hamborg, Museum of International folk Art í Nýju Mexíkó, National Museums of Scotland og Hönnunarsafni Íslands.

Stúdíó Fræ er alþjóðlegt hönnunarstúdíó sem starfar bæði á Íslandi og Kína. Stúdíó Fræ samanstendur af hönnuðunum Niki Jiao og Yiwei Li sem luku báðar meistaragráðu í hönnun við Listaháskóla Íslands. Störf Stúdíó Fræ eru fjölbreytt: Hönnunarráðgjöf, markaðssetning, vöruþróun, sýningarhönnun, margmiðlun, útgáfa og ljósmyndun. Hönnunarstúdíóið hefur m.a unnið að verkefnum með Bioeffect, 66° Norður, fatahönnuðinum Magneu ásamt myndaþáttum fyrir tímaritið HA.

Sjá nánar á vef Hönnunarsafns Íslands