Menningarnótt Reykjavíkur

Stærsta afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur Menningarnótt verður haldin laugardaginn 19. ágúst. Segja má að hátíðin sé hápunktur sumarsins þar sem skemmtilegir viðburðir lita mannlífið í miðborginni frá morgni til kvölds. Hátíðin er fyrir alla borgarbúa og gesti sem vilja taka þátt í hátíðinni og skemmta sér. Það er orðin hefð hjá mörgum fjölskyldum og vinahópum að mæla sér mót á Menningarnótt og eiga skemmtilegan dag saman. Gleðilega hátíð!

www.menningarnott.is