Marþræðir

Marþræðir  - sumarsýning í Húsinu á Eyrarbakka  - Byggðasafni Árnesinga

Ásta Vilhelmía GuðmundsdóttirÍ Húsinu á Eyrarbakka fyllir sjávargróður og önnur náttúra rýmið á nýstárlegri sumarsýningu Byggðasafns Árnesinga sem ber nafnið  Marþræðir. Sýningin er fullveldisárið með augum listamannsins Ástu Vilhelmínu Guðmundsdóttur þar sem hún beinir sjónum sínum að fjörunni og fjörunytjum. Þótt árið 1918 hafi talist slæmt ár bæði vegna  kulda og pestar þá voru landsmenn ekki óvanir slíkum aðstæðum og kunnu að nýta sér gjafir náttúrunnar. Ásta notar hráefni eins og sjávargróður ásamt ullinni til að vísa í bjargræði fólks þegar illa áraði. Marþræðir er samspil textílverka hennar við vel valda gripi úr safneign og veitir frumlega sýn á söguna.  Ýmsir viðburðir verða við safnið í sumar í tengslum við sýninguna og má sjá nánar um það á facebooksíðu sem og heimasíðu safnsins.

Ásta Vilhelmína hefur unnið með ólík efni í verkum sínum og oft nýtt sér hráefni úr fjörunni og hafinu. Hún hefur frá árinu 1998 tekið þátt í fjölda tísku- og hönnunarsýninga hérlendis sem erlendis og er ein af þeim sem nú reka verslunina Kirsuberjatréð. Á síðari árum hefur hún fært list sína mun frekar yfir á svið innsetninga og listsýninga. Hún hefur tekið þátt í ólíkum samstarfsverkefnum m.a. í Suður-Kóreu og Japan. Hennar einstaka þekking á náttúrulegum hráefnum skilar sér í mjög áhugaverðri sumarsýningu.

Sýningin stendur til til 30. september.

Á vef Hússins má lesa nánar um sýninguna.