Listasalur Mosfellsbæjar: hægt að sækja um fyrir sýningarárið 2022

Listasalur Mosfellsbæjar er í hjarta bæjarins, staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2.

Á hverju ári eru settar upp um tíu sýningar, jafnt reyndra listamanna sem nýgræðinga á sviðinu. Einnig er salurinn nýttur fyrir ýmsa viðburði eins og tónleika, fyrirlestra og fundi. Listasalur Mosfellsbæjar hefur það að leiðarljósi að vera virkur samkomustaður fyrir Mosfellinga og aðra gesti, bjóða upp á fjölbreyttar sýningar listamanna og vinna þannig að framþróun myndlistar á Íslandi.

Salurinn er rekinn af Mosfellsbæ og hefur verið starfræktur frá 2005. Hann er opinn á afgreiðslutíma Bókasafnsins og er gengið inn í salinn úr safninu. Salurinn er um 80 fm2 að stærð og honum fylgir eldhúsaðstaða með vaski og ísskáp, aðgengi að fatahengi og salerni. Einnig geta fylgt salnum borð og 75 stólar. Skjávarpi er í salnum og sýningartjald. Flygill Listaskóla Mosfellsbæjar er í Bókasafninu og eru afnot af honum í boði við tónlistarviðburði. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla.

Sýningar standa að jafnaði um fjórar vikur. Salurinn er lánaður endurgjaldslaust. Öllum umsóknum svarað.

→ Hér er hægt að sækja rafrænt um fyrir sýningarárið 2022

Umsóknarfrestur er til 1. júní n.k.

Listasalur Mosfellsbæjar
Þverholt 2
270 Mosfellsbær

S: 566 6822
Netfang: listasalur@mos.is

bokmos.is/listasalur
facebook.com/listasalurmoso
instagram.com/listasalur_moso