Leir á Loftinu 2023

Þann 10. júní opnar Leirlistafélag Íslands sýninguna “Leir á Loftinu 2023” þar sem félagar sýna verk sín á Hlöðulofti Korpúlfsstaða, Thorsvegi 1. Gengið er upp hægri rampinn.

Verkin sýna fjölbreytileikann sem á sér stað í keramikinu þar sem myndlist og hönnun getur verið undir einum hatti allt eftir því í hvaða átt hugur listafólksins leitar. Að vinna með leir sem aðal efnivið sköpunar gefur óendanlega möguleika. En það er áskorun, leirinn er duttlungafullur og kennir okkur þolinmæði og æðruleysi. Til að ná markmiðum okkar í sköpuninni þurfum við oft að berjast við hann, semja við hann og finna þá leið sem fær hann til að lúta vilja okkar. Þegar það tekst höfum við sigrað efnið og náð andanum.
Opnunarhátíð laugardaginn 10. júní kl 14:00, léttar veitingar í boði.
Sýningin verður opin eftir það:
Laugardaga og sunnudaga 13:00 - 17:00
Fimmtudaga og föstudaga 16:00 - 19:00
Síðasti sýningardagur er 25. júní.
 
Sýnendur eru:
Þórdís Baldursdóttir
Ólöf Sæmundsdóttir
Katrín Valgerður Karlsdóttir
Jóna Guðvarðardóttir
Hrönn Waltersdóttir
Halldóra Hafsteinsdóttir
Guðný Rúnarsdóttir
Elísabet Haraldsdóttir
Daði Harðarson
Auður Inga Ingvarsdottir
Auður Gunnur Gunnarsdóttir
Arnbjörg Drífa Káradóttir
 

Sjá nánar um sýninguna hér