Leir á loftinu

Samsýning meðlima Leirlistafélags Íslands á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum frá 12. - 27. nóvember 2022.

Síðasti sýningardagur er 27. nóvember.

Sýningin “Leir á Loftinu” er yfirlitssýning félaga í Leirlistafélagi Íslands og þar má glöggt sjá hve ólíkar leiðir er hægt að fara í sköpun með leir. Það er hægt að vinna með hann mjúkan, sveigjanlegan, harðan, grófan, fíngerðan og fljótandi. Verk úr leir geta verið málverk, skúlptúr, nytjalist eða eitthvað allt annað.

Sum verkin eru svo glæný að þau eru sett upp volg úr ofnunum á degi opnunarinnar. Önnur eru eldri, frá ákveðnu tímabili í ferli listafólksins eða frá mismunandi tímum og sýna ferðalag listsköpunarinnar. Verkin á sýningunni eru því mjög fjölbreytt og gefa örlitla innsýn í þær óendanlegu áttir sem listafólk getur farið í listsköpun sinni með leirinn sem efnivið.

Sýnendur eru starfandi leirlistafólk, allt frá stofnfélögum til nýjustu meðlima félagsins:

  • Þórdís Sigfúsdóttir
  • Þórdís Baldursdóttir
  • Unnur S. Gröndal
  • Ólöf Sæmundsdóttir
  • Kristbjörg Guðmundsdóttir
  • Katrín Valgerður Karlsdóttir
  • Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir
  • Hrönn Waltersdóttir
  • Halldóra Hafsteinsdóttir
  • Hafdís Brands
  • Guðný Margrét Magnúsdóttir
  • Glytta
  • Daði Harðarson
  • Auður Inga Ingvarsdottir
  • Auður Gunnur Gunnarsdóttir
  • Arnfríður Lára Guðnadóttir
  • Arnbjörg Drífa Káradóttir
  • Ása Tryggvadóttir
  • Aldís Yngvadóttir

Sýningin er opin: laugardaga og sunnudaga 13:00 - 18:00 - fimmtudaga og föstudaga 17:00 - 20:00

Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 27. nóvember.

Leirlistafélag Íslands (LÍ) var stofnað 1981 og er því 41 árs í ár, 2022.

Verkin eru frá mismunandi tímum í ferli listafólksins og sýna fjölbreytileikann í sköpunarferlinu með leirinn.

Leir og önnur efni sem notuð eru í leirlist eru flest náttúruleg efni sem grafin eru upp úr jörðu. Möguleikar þeirra sem efniviður til sköpunar er nær óendanlegur og það er hlutverk listafólksins að finna sína leið með efnið. Það getur verið langt og strembið ferli því leir virðist hafa sjálfstæðan vilja og er ekki alltaf til í að fyrirgefa meðferðina á sér. Þá þarf að finna aðrar leiðir sem leirinn sættir sig við. Þetta eru samningaviðræður og geta tekið langan tíma og margar tilraunir áður en markmiðinu er náð.