Kynning á vinnustofum og framtíð Hegningarhússins

Kynningarfundur
Mánudaginn 23. nóvember kl. 16:30
Í Grósku, Kristínargötu 1

Mánudaginn næstkomandi verður opinn kynningarfundur um uppbyggingu vinnuaðstöðu og setur fyrir listhandverks fólk og hönnuði í gamla Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg.

Um allnokkuð skeið hefur Storð ehf. unnið að endurgerð Hegningarhússins. Húsið hefur gengið í gegnum umfangsmiklar breytingar og engu verið til sparað við að endurheimta reisn þessa fallega og sögufræga húss.

Samhliða hefur hópur fólks unnið að hugmynd um að í húsinu verði starfrækt miðstöð fyrir listhandverksfólk og hönnuði, með vinnustofum, verslun og fjölnota rýmum sem munu nýtast listhandverki og fjölbreyttri menningarstarfsemi borgarinnar.

Hegningarhúsið hentar ákaflega vel fyrir þessa starfsemi. Hugmyndin er að vinnustofur verði í gömlu fangaklefunum, sem allir hafa verið uppfærðir til að þjóna nýju hlutverki, verslun og sýningarrými eru svo í rúmbetri rýmum hússins. Gestir munu því geta upplifað skapandi starfsumhverfi um leið og þeir ganga um hús sem býr yfir langri sögu, hulinni blæju þess forboðna.

Á kynningarfundinum verður farið yfir hugmyndina í stóru og smáu; alla helstu þætti starfseminnar, svo sem rekstrarfyrirkomulag, leigu og aðbúnað í vinnustofum (fangaklefum), fyrirkomulag verslunar og sýningarrýma, auk þeirra fjölmörgu möguleika sem húsnæðið og samstarf listhandverksfólks býður upp á.

Fimmtudaginn 25. nóvember gefst áhugasömum umsækjendum tækifæri á að skoða Hegningarhúsið milli kl. 15:00 og 17:00.

Við hvetjum alla áhugasama til að mæta og láta erindið berast sem víðast. Hægt er að sækja um HÉR

 

Nánari upplýsingar veita:

Erling Jóhannesson s .8916338

Halla Bogadóttir s.6617797

Lovísa Óladóttir s. 6956121