Konstrúktívur vandalismi

Verið velkomin á sýninguna Konstrúktívur vandalismi með verkum eftir Daníel Magnússon í Hverfisgalleríi.

Þann 11. febrúar næstkomandi opnaði DANÍEL MAGNÚSSON sína aðra einkasýningu í Hverfisgalleríi og ber hún titilinn Konstrúktívur vandalismi. Á sýningunni eru tíu verk sem Daníel hefur unnið á undanförnum misserum. „Hringur og þvermál hans eru bundnir innbyrðis hlutfalli sem er torrætt. Það þýðir að þessi algengustu form sköpunarinnar geta ekki átt samskipti sem vísa í þeirra eigin tilvist. Þannig getur hringurinn ekki lýst þvermáli sínu og þvermálið þekkir ekki hringinn. Sýningin Konstrúktívur vandalismi er skemmdarverk á fullkominni kennisetningu þeirra Galileos Galilei og Giordanos Bruno og upphafning jarðmiðjukenningar Ptólemæusar. Sýningin er jafn rökrétt tilraun mín til að lýsa samkomulagi um heimsmyndina eins og hringsins sem lýsir þvermáli sínu,“ segir Daníel Magnússon í sýningartexta.

Verkin á sýningunni eru flest unnin með blýanti og penna á pappír. Þau eru flestöll hugsuð sem kortagerð fyrir hinn miðjusetta heim Ptólemæusar. Tvenn verkanna eru frussprent á bómull og eru þau hugsuð sem undirspil við hin kortin til að gefa þessum heimi heildrænni grunn.

Daníel Magnússon útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og vakti þá strax athygli fyrir áhugaverð verk þar sem íslensk menning var oftar en ekki til umfjöllunar. Hann er einkum þekktur fyrir skúlptúra og ljósmyndaverk en hefur jafnframt myndlistinni hannað og smíðað húsgögn og unnið leikmyndir fyrir leikhús og sýningar. Daníel á að baki annan tug einkasýninga ásamt fjölda samsýninga bæði innanlands og utan. Verk hans eru m.a. í eigu Listasafns Íslands, Reykjavíkurborgar, ýmissa ríkisstofnana, og einkaaðila bæði hérlendis og erlendis.