KLJÁSTEINAVEFSTAÐURINN - kljásteinar klingja

Bókakynning föstudaginn 15. desember kl. 19 Heimilisiðnaðarfélag  Íslands Nethyl 2e

 Út er komin bókin Kljásteinavefstaðurinn – kljásteinarnir klingja hjá Museeumssenteret í Hordaland í Noregi. Bókin er að mestu skrifuð á ensku, utan faglegra leiðbeininga, fagurlega myndskreytt og ætluð handverksfólki og öllum þeim sem hafa yndi af sagnfræði. Í bókinni er einnig að finna leiðbeiningar um uppsetningu á kljásteinavef og fróðlegar greinar fræðimanna um textílrannsóknir. Höfundar bókarinnar eru margir en Hildur Hákonardóttir (Ísland), Marta Klove Juuhl (Noregur) og Elizabeth Johnston (Hjaltlandseyjar) skrifa ítarlegar greinar um vefnaðinn í heimalöndum sínum. Allar hafa þær fengist við vefnað eða spuna mikinn hluta ævi sinnar. Auk þeirra þriggja verður Atle Ove Martinussen ritstjóri bókarinnar við kynninguna og Alexandra Chernyshova sópransöngkona syngur.

Bókin er þriggja landa sýn á vinnu kvenna á Íslandi, Noregi og Hjaltlandi sem störfuðu að vefnaði meðan vararfeldir og síðar vaðmál voru opinber gjaldmiðill. Kirkjutíundir og aðrir skattar voru greiddar með þessum varningi og sama gilti um kaup til verkafólks. Þetta var hægt því vaðmálið var staðlað og auðseljanlegt og því stór liður í utanríkisverslun þessara landa. Vaðmál stóð auk þess að undir margskonar kostnaði fyrir þá sem ferðuðust erlendis eða voru þar við nám. Gjöld til páfa voru einnig greidd með vefnaði.

Ísland er ríkast af skrifuðum heimildum um vefstaðinn hvar svo sem leitað er. Noregur varðveitti lifandi hefðina að hluta og Hjaltlandseyjar voru og eru sauðfjárríkar eyjar tengdar lifandi hefð þar sem mikið var verslað með textíla.

Bókin er liður í því að vekja athygli sögu kvenna og gildi hennar. Reynt er að sýna fram á af  Íslands hálfu af hverju við ófum á steinaldarverkfæri í 500 ár eftir að láréttur og snöktum fljótvirkari vefstóll var tekinn upp í flestum löndum Evrópu og byggðist þó útflutningur okkar af langstærstum hluta á vefnaði þegar sú breyting gekk í garð. 

Nánari upplýsingar veita:

Hildur Hákonardóttir listakona, gsm 849 8467, netfang: hildurhak@gmail.com

Margrét Valdimarsdóttir, formaður Heimilisiðnaðarfélags Íslands, gsm 8480683, netfang: hfi@heimilisidnadur.is