Kettir og pils - Handverkssýning Aðalbjargar Jónsdóttur

Aðalbjörg Jónsdóttir, sem mun fagna 100 ára afmæli í desember nk., hefur opnað sýningu á prjónuðu listahandverki í Kirsuberjatrénu við Vesturgötu.  

Aðalbjörg er kunn fyrir prjónaða blúndakjóla úr eingirni sem eru einstakir í sinni röð og hafa vakið hafa athygli langt út fyrir landsteinanna. Á sýningunni mun Aðalbjörg sýna prjónað listhandverk sem hún hefur unnið að á síðustu árum og óhætt er að segja að komi skemmtilega á óvart. Ævisaga Aðalbjargar, Líf og list Aðalbjargar Jónsdóttur: Prjónað af fingrum fram, skráð af Kristínu Schmidhauser, kom nýlega út í Bókaútgafu Sæmundar. Þá er væntanleg á næsta ári bók um prjónaða kjóla Aðalbjargar, ásamt uppskriftum, eftir Hélène Magnússon.

Sýningin, sem er sölusýning, mun standa yfir fram til sunnudagsins 16. október.

Nánar um sýninguna hér