Jónsmessugleði Grósku 2022

Hægt er að sækja um að vera með á Jónsmessugleði Grósku sem haldin verður 23. júní kl. 19.30-22.00 við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar. Í þetta sinn er þemað “ljós og skuggar”.

Jónsmessugleði Grósku er myndlistarsýning með listviðburðum. Tveir staurar eru settir niður fyrir hvern sýnanda og eru strigarnir með málverkum strengdir milli þeirra. Málverkin þurfa að vera lárétt, þ.e. í landslagsformati (sa. 94x127 sm). Sumir eru með önnur myndverk og nýta þá strigann sem bakgrunn. Aðrir hafa komið með skúlptúra og innsetningar enda hvetjum við til fjölbreytileika í listmiðlum. Mikilvægt er þó að hafa í huga að straurarnir og strigarnir mynda ramma um verkin og gefa sýningunni áferðarfallegt heildaryfirbragð.

Þátttökugjald er 3.500 kr. og innifalið í því er sérhannaður Jónsmessustrigi fyrir þau sem eruð með myndverk ásamt lokahófi eftir Jónsmessugleði þar sem sýnendum ásamt mökum er boðið upp á sælkerasúpu og aðrar ljúfar veitingar. Í boði er að sýna eitt eða tvö verk fyrir þátttökugjaldið. Stofnaðar verða kröfur í heimabanka.

Skráningarfrestur er til og með 15. maí og hér er hægt að skrá sig.

Á Jónsmessugleði Grósku eru margvísleg listaverk til sýnis í töfrandi umhverfi og jafnframt er boðið upp á dagskrá með fjölbreyttum listviðburðum. Einkunnarorð Jónsmessugleði Grósku eru: gefum, gleðjum og njótum og slá þau tóninn fyrir þá notalegu og skemmtilegu stemningu sem ríkir um kvöldið. Að venju lýkur gleðinni svo með eftirminnilegum gjörningi sem sýnendur taka þátt í. 

Þúsundir gesta hafa streymt á Jónsmessugleði Grósku á hverju ári og þetta er því kjörið tækifæri fyrir listamenn til að koma sköpun sinni á framfæri og kynnast öðrum listamönnum.

Sýningin verður mögulega látin standa í nokkra daga við Strandstíginn eins og í fyrra og ráða sýnendur sjálfir hvort þeir vilja taka þátt í því.

Upplýsingar og nánara skipulag verður sent á þátttakendur þegar nær dregur.

Gróska á Facebook

Gróska á Instagram