Jólamarkaður í Heiðmörk - opið fyrir umsóknir

Skógræktarfélag Reykjavíkur heldur jólamarkað við Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk allar aðventuhelgar. Opnað hefur verið fyrir umsóknir á handverksmarkaðinn þar sem áhersla er lögð á vandaðar handunnar vörur úr náttúrulegum efnum, listhandverk úr viði með vísun í skógarmenningu, innlend matvæli og snyrtivörur og umhverfisvænar vörur.

Umsóknarfrestur er til 24. október.

Jólamarkaðurinn í Heiðmörk
Skógræktarfélag Reykjavíkur heldur jólamarkað við Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk allar aðventuhelgar 2021. Með markaðnum vill félagið stuðla að ævintýralegri skógarupplifun í vetrarparadísinni Heiðmörk. Lögð er áhersla á ljúfa og notalega stemmningu en heimsókn á jólamarkaðinn hefur fest sig í sessi sem aðventuhefð hjá fjölmörgum.
Á jólamarkaðinum selur Skógræktarfélag Reykjavíkur jólatré og aðrar skógarafurðir, boðið er upp á spennandi dagskrá fyrir gesti þar sem rithöfundar lesa úr verkum sínum, tónlistarfólk flytur ljúfa tóna og hægt er gæða sér á kakó, kaffi og kræsingum á viðráðanlegu verði í kaffistofunni. Handverksmarkaðurinn er órjúfanlegur hluti Jólamarkaðarins en þar geta gestir keypt spennandi vörur til gjafa eða eigin nota.

Handverksmarkaður
Söluaðilum býðst að leigja söluborð eina eða fleiri aðventuhelgar. Sérstök áhersla er lögð á handverk úr náttúrulegum efnum sem og innlenda matargerð og snyrtivörur. Markaðsborð eru staðsett í tveimur samliggjandi sölum í Elliðavatnsbænum og í kofum á útisvæði. Söluaðilar fá borð (150x80 cm), stóla og aðgang að rafmagni. Svæðið er fallega skreytt og upplýst. Skógræktarfélag Reykjavíkur sér um markaðsetningu og kynningu bæði í hefðbundnum miðlum og á samfélagsmiðlum.
Á handverksmarkaðnum er lögð áhersla á:

  • Vandaðar handunnar vörur úr náttúrulegum efnum.
  • Listhandverk úr viði eða með vísun í skógarmenningu.
  • Innlend matvæli og snyrtivörur.
  • Umhverfisvænar vörur.

Jólamarkaðurinn er opin allar aðventuhelgar kl. 12 - 17.

Umsóknarfrestur og verð
Umsóknarfrestur er til miðnættis 24. október á netfangið: jolamarkadur@heidmork.is
Umsókninni skal fylgja:
- Nafn, netfang og símanúmer umsækjanda.
- Heiti og lýsing á söluvöru.
- Mynd/myndir af söluvöru.
- Kennitala greiðanda vegna leigu á sölubás.
- Ósk um aðventuhelgi / helgar.

1) 27.-28. nóvember
2) 4.-5. desember
3) 11.-12. desember
4) 18.-19. desember

Verð fyrir söluborð eða jólakofa:

Ein helgi 12.000 kr.
Tvær helgar 21.000 kr.
Þrjár helgar 30.000 kr.
Fjórar helgar 36.000 kr.

ATHUGIÐ söluborð eru ekki leigð út staka daga.

Svör við umsóknum verða send til þátttakenda 1. nóvember. Við val á þátttakendum er tekið mið af þeirri vörustefnu sem Jólamarkaðurinn setur. Ásókn í söluborð á handverksmarkaðnum hefur undanfarin ár verið mun meiri heldur en framboðið. Af þessum sökum er nauðsynlegt að velja úr umsóknum.

Fyrirvari: Handverksmarkaðurinn er háður gildandi takmörkunum vegna Covid-19. Skógræktarfélag Reykjavíkur áskilur sér rétt til að bregðast við sóttvarnartakmörkunum gerist þess þörf.

Nánari upplýsingar
Margrét Valdimarsdóttir, jólamarkaðstjóri, sími 848 0863 - mailto:jolamarkadur@heidmork.is

Skógræktarfélag Reykjavíkur
Sími: 564 1770
Elliðavatnsland
110 Reykjavík 

www.heidmork.is