Jólagleði Hönnunarmiðstöðvar Íslands

Hönnunarmiðstöð blæs til jólagleði  fimmtudaginn 1. desember kl. 17-20 þar sem opnaður verður fyrsti „glugginn“ í stórglæsilegu tveggja metra háu jóladagatali miðstöðvarinnar (líklega því stærsta á Íslandi).
Á hverjum degi fram að jólum verður „gluggi“ opnaður með glæ-nýrri vöru frá Íslenskum hönnuði, en þann dag verður varan fáanleg á sérstöku jólatilboði. Fylgist með tilboðunum á Instagram- og Facebooksíðu Hönnunarmiðstöðvar.

Smelltu hér til að sjá vörur jóladagatalsins!

Vörurnar verða til sölu í PopUp búð í húsnæði Hönnunarmiðstöðvar í Aðalstræti 2 en hún verður einskonar forsmekkur að því sem koma skal, því á nýju ári mun verslun með íslenska hönnun opna á neðri hæð hússins. Verslunin verður opin alla virka daga og um helgar frá kl.12-17.
Verkefnið er unnið í samstarfi við PopUpVerzlun & And AntiMatter sem hannaði dagatalið.

Sjá nánar á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar og viðburð á Facebook