Íslensk-ameríska félagið auglýsir styrki

Menningarsjóður Pamelu Sanders Brement og Íslensk-ameríska félagið auglýsa til umsóknar styrk fyrir listafólk til að sækja námskeið við Haystack Mountain School of Crafts í Maine.
Tveir styrkir eru í boði, að upphæð um $ 3.000 hvor.

Frekari upplýsingar um námskeiðin og kennslugreinar má finna á heimasíðu skólans á www.haystack-mtn.org

Til að sækja um Haystack listastyrkinn þarf að leggja inn eftirfarandi gögn:

1. Útfyllta umsókn á ensku
2. Ferliskrá þar sem fram koma upplýsingar um heimilsfang, símanúmer, netfang og heimasíðu ef við á
3. Yfirlýsing um listrænar áherslur
4. Lýsing á reynslu og færni í listgreininni sem námskeiðið fjallar um
5. Afrit af prófskírteini úr háskólanámi sem umsækjandi hefur lagt stund á
6. Tvö meðmælabréf
7. Sýnishorn af verkum umsækjanda, nánar tiltekið 10 ljósmyndir með útskýringum (í einu pdf skjali sem er ekki stærra en 2 MB).

Umsóknareyðublað má sækja hér

Umsóknir skulu sendar á netfang iceam@iceam.is eigi síðar en 10. febrúar 2019.