Hvítur - sýningaropnun á Akureyri

Hvítur
40 ára afmælissýning Leirlistafélags Íslands.
10. til 25. júlí í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélags Akureyrar
 
Á 40 ára afmælisári Leirlistafélags Íslands verður lögð áhersla á sýnileika félagsins í sem víðasta samhengi og boðið til ýmissa viðburða. Einn þeirra verður farandsýningin Hvítur, sem nú verður opnuð í Mjólkurbúðinni á Akureyri. Sýningin var í Listasafni Árnesinga í júní og mun ljúka ferð sinni í um landið í Vitanum á Akranesi. Þema sýningarinnar er Hvítur. Öll umgjörð og verk sýningarinnar verður hvít, á vegg eða gólfi.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 15 - 18 til 25. júlí.
 
Þátttakendur:
Bjarni Viðar
Kolbrún Sigurðar
Ragnheiður Ingunn
Auður Gunnur Gunnarsdóttir
Auður Inga Ingvarsdóttir
Ása Tryggvadóttir
Daði Harðarson
Dagný Gylfadóttir
Dóra árnadóttir
Drífa Káradóttir
Elín Guðmundsdóttir
Elísabet Haraldsdóttir
Erla Huld Sigurðardóttir
Guðný Hafsteinsdóttir
Guðný M. Magnúsdóttir
Guðrún Indriðadóttir
Halla Ásgeirsdóttir
Hólmfríður Vídalín Arnagrímsdóttir
Ingunn Erna Stefánsdóttir
Katrín Valgerður Karlsdóttir
Kristbjörg Guðmundsdóttir
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir
Margrét Árnadóttir
Margrét Jónsdóttir
Olga Dagmar Erlendsdóttir
Ragna Ingimundardóttir
Sandra Borg Gunnarsdóttir
Sigríður Ágústsdóttir
Svetlana Matusa
 

Upphaf Íslenskrar leirlistar er rakið aftur til ársins 1930. Saga greinarinnar er því mjög stutt. Árið 1969 var byrjað að kenna leirlist sem listgrein við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Í mars 1981 var félagið stofnað og bar nafnið félag íslenskra leirlistamanna. Félagið var ætlað öllum menntuðum leirlistamönnum hvort sem þeir unnu að nytjalist eða frjálsri myndlist. Takmarkið var og er að efla veg og virðingu greinarinnar á Íslandi ásamt því að koma upp faglegu félagi með sambönd út í heim svo íslenskt leirlistafólk gæti fylgst með straumum og stefnum sem víðast. Nafn félagsins í dag er Leirlistafélag Íslands.