Hugur og hönd á timarit.is

Nokkrar af forsíðum blaðsins
Nokkrar af forsíðum blaðsins

Hugur og hönd á timarit.is

Ársrit HeimiIisiðnaðarfélags Íslands Hugur og hönd er nú aðgengilegt á rafrænu formi á timarit.is (sjá hér).

Ritið hefur komið út frá árinu 1966 og hefur að geyma vandaða umfjöllun um handverk og listiðnað auk uppskrifta. Hugur og hönd er sígilt rit um sígilt efni sem á sér dyggan hóp lesenda. Margt af því sem birtist í elstu eintökum blaðsins hefur aftur komist í tísku því eins og við öll þekkjum gengur allt í hringi. Eldri blöð eru því kjörin hugmyndabanki að nýjum og spennandi handverksverkefnum.

Félagsmenn HFÍ fá ársritið sent um leið og árgjöld eru innheimt á vorin en auk þess er hægt að vera áskrifandi af ritinu sérstaklega (án þess að vera félagsmaður). Fjölmargir árgangar af Hug og hönd eru enn fáanlegir á pappírsformi en margir árgangar eru löngu uppseldir.

Hugur og hönd mun áfram koma út á óbreyttu formi, þ.e. prentað. Á timarit.is verður þriggja ára birtingartöf, þ.e. þrír nýjustu árgangarnir eru ekki aðgengilegir á netinu.