Hönnunarverðlaun Íslands 2017

Óskað er eftir tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands 2017.

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar, en hægt er að benda á eigin verk og verk annarra til miðnættis laugardaginn 30. september. 
Markmið með innsendingum er að tryggja að afburða verk fari ekki fram hjá dómnefnd og því hvetjum við eigendur góðra verka til þess að tilnefna eigin verk.

Hægt er að tilnefna í tveimur flokkum; Hönnun ársins 2017 og Besta fjárfesting ársins 2017 í hönnun. Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun og Samtök iðnaðarins.

Smelltu hér til að tilnefna
Til að hljóta Hönnunarverðlaun Íslands 2017 þurfa hönnuðir að vera félagar í einu af aðildarfélögum Hönnunarmiðstöðvar Íslands eða vera fagmenn á sínu sviði.

Ný verk teljast til þeirra verka sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þrem árum fyrir afhendingu verðlaunanna. Tekið er tillit til eðlismunar á hönnunargreinunum í þessu samhengi þar sem verkefni taka mislangan tíma og í sumum tilfellum mörg ár. Vinningshafar geta komið úr öllum greinum hönnunar en þurfa að skara verulega fram úr með verkefni sínu eða vinnu.

Besta fjárfesting í hönnun
Viðurkenningin Besta fjárfesting í hönnun var fyrst afhent 2015 og verður veitt því fyrirtæki sem hefur með eftirtektarverðum hætti fjárfest í hönnun og arkitektúr eða innleitt aðferðir hönnunar í grunnstarfsemi sína. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna Besta fjárfesting í hönnun 2017 hafa hönnun og arkitekúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.

Markmið Hönnunarverðlauna Íslands
Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs ásamt því að veita hönnuðum, arkitektum og fyrirtækjum viðurkenningu fyrir vel unnin störf.
Vægi hönnunar í menningu okkar, samfélagi og viðskiptalífi er óðum að aukast. Því eru Hönnunarverðlaun Íslands mikilvægur liður í því að vekja athygli á gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs og auka skilning á gildi góðrar hönnunar. Hönnunarverðlaunin gera íslenska hönnuði og arkitekta og þau fyrirtæki sem leggja áherslu á hönnun sýnilegri og þar með áhrifameiri í samfélaginu.
Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent í fyrsta sinn árið 2014.
Í ár verða Hönnunarverðlaun Íslands afhent í lok október. Nánari dagsetning auglýst síðar.

Dómnefnd
Formaður dómnefndar er Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og stofnandi SPARK Design Space. Auk Sigríðar sitja eftirtaldir aðilar í dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2017.
Sigríður Heimisdóttir, sviðsstjóri hugverkasviðs, fulltrúi Samtaka iðnaðarins
Högni Valur Högnason, grafískur hönnuður á auglýsingastofunni Brandenburg.
Katrín Káradóttir, fatahönnuður og fagstjóri fatahönnunarbrautar Listaháskóla Íslands
Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og deildarforseti hönnunar - og arkitektúrdeiladar Listaháskóla Íslands
Tinna Gunnarsdóttir, vöruhönnuður og prófessor við Listaháskóla Íslands
Nánar á heimasíðu Hönnunarverðlauna Íslands.