Hönnunarverðlaun Íslands 2016

Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent í þriðja sinn þann 6. október sl. við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu. Veitt voru verðlaun í tveimur flokkum, Hönnunarverðlaun Íslands og Besta fjárfesting ársins 2016.

Hátt í 100 tilnefningar bárust dómnefnd sem tilnefndi fjögur verkefni sem þóttu sigurstranglegust. Verkefnið sem þótti skara framúr að mati dómnefndar og hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2016 er As We Grow. Hönnunarverðlaun Íslands 2016 eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, veitt af iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

As We Grow er íslenskt hönnunarfyrirtæki í eigu Guðrúnar Rögnu Sigurjónsdóttir, prjónahönnuðar, Maríu Th. Ólafsdóttur, fatahönnuðar og Grétu Hlöðversdóttur framkvæmdastjóra. Með vörulínunni tvinna þær saman fagurfræði, hefðum og nútíma í endingargóðan fatnað sem bæði vex með hverju barni og endist á milli kynslóða.

Umsögn dómnefndar:
As We Grow byggir á ábyrgum umhverfissjónarmiðum og afstöðu gagnvart líftíma og endingu framleiðsluvöru á tímum ofgnóttar. Tímalaus einfaldleiki hönnunar og einstök gæði vöru hafa ásamt samfélagslegri ábyrgð og metnaðarfullri stefnu í umhverfismálum skapað fyrirtækinu sérstöðu heima og heiman.“

Viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun er veitt fyrirtæki sem hefur hönnun eða arkitektúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi.

Viðurkenningin er nú veitt í annað sinn og er óhætt að fullyrða að vinningshafinn í ár hafi fengið til starfa einhverja færustu hönnuði landsins, hver á sínu sviði. Með þessu hefur fyrirtækið skilgreint hönnun sem mikilvægan þátt í öllu þróunarferli og skapað ímynd og upplifun tengda fyrirtækinu með framúrskarandi hætti. Viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2016 hlaut fyrirtækið Geysir.