Haustnámskeið Myndlistaskólans í Reykjavík

Skráning á haustnámskeið Myndlistaskólans í Reykjavík stendur yfir.

Í haust eru í boði fjölbreytt námskeið fyrir bæði börn og fullorðna sem standa yfir í 13 vikur. Námskeiðin hefjast flest fyrstu vikuna í september.
Námskeiðin eru haldin í JL-húsinu,  á Korpúlfsstöðum og í Miðbergi, Breiðholti.
Skráning fer fram í gegnum vefsíðu skólans en þar er hægt að sjá þau námskeið sem eru í boði.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Myndlistaskólans, mir@mir.is eða í sima 551 1990.
Hlekkur á skráningasíðu