Handverkshópurinn Bolli hefur opnað eftir endurbætur

Handverkshópurinn Bolli í Búðardal hefur nýtt veturinn í að hressa upp á húsnæðið sitt.

Handverkshópurinn Bolli í Búðardal hefur nýtt veturinn í að hressa upp á húsnæðið sitt. Verslunin stendur við Vestfjarðaveginn, sem liggur í gengum Búðardal. Verslunin var öll tekin í gegn, gólfefni, innréttingar og rýmið endurskipulagt. Lopapeysurnar vinsælu hafa fengið heiðurssess í versluninni, og nú er auðveldara að skoða þær og velja úr. Einnig var komið upp kósíhorni fyrir þá félagsmenn sem eru á staðnum hverju sinni, þar sem er hægt að sitja og prjóna í þægilegri birtu. Við skipulagsbreytingarnar fékk Bolli til liðsinnis Sunnevu Hafsteinsdóttur frá Handverki og hönnun, en stjórn félagsins hefur séð um framkvæmdir og útfært hugmyndirnar endanlega. Nokkrir vaskir iðnaðarmenn hafa lagt hönd á plóginn og útkoman þykir vel heppnuð.

Verslunin opnaði á sumardaginn fyrsta, harmonikuklúbburinn Nikkólína spilaði og spenntir gestir sýndu sig.

Opið verður fram á vorið frá fimmtudegi til sunnudags, frá klukkan 11–17, en svo bætist í opnun þegar ferðamenn fara á stjá með sumrinu.

Handverkshópurinn Bolli á Facebook