Handverkshátíðin 2019

Handverkshátíðin í Eyjafjarðarsveit verður nú um helgina, 8. til 11. ágúst.

Handverkshátíðin í Eyjafjarðarsveit verður nú haldin í 27. sinn. Um 100 hönnuðir og handverksfólk selja fatnað, keramik, snyrtivörur, textílvörur og skart sem oftar en ekki er unnið úr rammíslensku hráefni. Á útisvæðinu er hægt að bragða á og kaupa góðgæti frá Beint frá býli auk fjölda annarra aðila. Ýmsar uppákomur eru í boði alla dagana s.s. sýning á gömlum traktorum og miðaldabúðir. 

Handverkshátíðin er haldin í Hrafnagilsskóla 10 km sunnan við Akureyri.

Opið fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 11 til 18.

Upplýsingar um viðburði og dagskrá hátíðarinnar má finna á heimsíðufésbókarsíðu Handverkshátiðar og Instagram.