Mikilvæg skref í átt að framtíðinni!
Stjórn Handverks og hönnunar hefur síðastliðið ár unnið að endurskipulagningu sjálfseignarstofnunarinnar með það að markmiði að styrkja starfsemi hennar og skapa traustan grundvöll til framtíðar.
Helstu breytingar felast í nýju heiti, Miðstöð handverks, og endurskoðaðri skipulagsskrá sem stuðlar að skýrara og nútímalegra stjórnskipulagi.
Kynningarfundur fyrir stofnfjáraðila verður haldinn rafrænt mánudaginn 23. nóvember kl. 20:00.
Stofnfjáraðilar eru hvattir til að kynna sér breytingarnar og taka þátt í staðfestingu nýrrar skipulagsskrár með rafrænni undirritun.
Dagskrá: