HANDA Á MILLI

HANDA Á MILLI 

Bókin HANDA Á MILLI – HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ÍSLANDS Í HUNDRAÐ ÁR er kjörin jólagjöf fyrir allt áhugafólk um handverk.

Bókin verður til sölu á góðu verði í Aðalstræti 10 helgina 28. -29. nóvember kl. 12-17.

Bókin er eftir Áslaugu Sverrisdóttur sagnfræðing og vefnaðarkennara. Saga Heimilisiðnaðarfélagsins 1913-2013 endurspeglar þróun handverks með breyttri samfélagsgerð. Bókin er 300 blaðsíður með yfir 150 ljósmyndum auk leiðbeininga úr handraðanum sem handverksfólk mun hafa unun að. Bókin er einstaklega falleg en hún er klædd lérefti með ísaumuðu munstri Ragnheiðar biskupsfrúar á Hólum frá 17. öld. Fjölmargar nýjar og gamlar ljósmyndir prýða bókina, auk þess sem handverksleiðbeiningar sem sérstaklega höfða til handverksfólks undir yfirskriftinni Úr handraðanum eru í bókinni.

Sjá nánar á vef Heimilisiðnaðarfélagsins