Hægt að sækja um í Hönnunarsjóð

Opið er fyrir umsóknir um styrki í HÖNNUNARSJÓÐ.

Þetta er fjórða og síðasta úthlutunin á þessu ári, en frestur til þess að sækja um styrk rennur út á miðnætti fimmtudaginn 5. október. Í þessari atrennu er hægt að sækja um markaðs-, þróunar- og verkefnastyrk. Auk þess sem hægt er að sækja um ferðastyrki.

Smelltu hér til að sækja um. 

Úthlutun fer fram 16. nóvember.

Rafrænt umsóknareyðublað er að finna á sjodur.honnunarmidstod.is