FUGLAR á Skriðuklaustri

Sýningin FUGLAR verður opnuð á Skriðuklaustri á Pálmasunnudag kl. 14. 

FUGLAR er páskasýning ársins 2018 á Skriðuklaustri og er hún unnin í samvinnu Gunnarsstofnunar og HANDVERKS OG HÖNNUNAR. Þar má sjá fjölbreytta fugla úr leir, tré og pappír svo eitthvað sé nefnt. Á sýningunni er einnig bókin "Fuglar" sem Angústúra gaf út í fyrra.  

Sýnendur eru: Ágúst Jóhannsson, Erna Jónsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Hafþór Ragnar Þórhallsson, Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring, Margrét Þórarinsdóttir, Oddný Jósefsdóttir, Rósa Valtingojer, Smávinir/Lára Gunnarsdóttir og Úlfar Sveinbjörnsson.

Að auki verður spilið Fuglafár eftir þær Birgittu Steingrímsdóttur og Heiðdísi Ingu Hilmarsdóttur á staðnum og geta gestir spreytt sig á því.

Sem fyrr segir er sýningaropnun á Pálmasunnudag, þann 25. mars kl. 14 til 17.

Sýningin FUGLAR mun svo verða opin alla daga frá og með föstudeginum langa, 30. mars til 22. apríl frá kl. 12 til 16.